Fréttir
Nýjustu fréttir frá Vefmundi
Viðhald húsa
Reglulegt viðhald er besta leiðin til að koma í veg fyrir dýrar viðgerðir. Íslenskt veðurfar reynir mikið á hús og því borgar sig að fylgjast vel með ástandi þaks, glugga og útveggja.
Margir bíða með viðhald þar til skemmdir eru orðnar sýnilegar, en þá er kostnaðurinn oft orðinn margfaldur. Með því að láta skoða húsið á nokkurra ára fresti er hægt að grípa inn í áður en raki og frost valda varanlegum skemmdum.
Það sem gott er að skoða
- Þak, þakkantar og rennur
- Gluggar, þéttingar og opnanleg fög
- Sprungur og flögnun í múr og málningu
- Svalir, tröppur og frágangur við niðurföll
Við bjóðum upp á ástandsskoðun þar sem við förum yfir húsið, gefum ráð um forgangsröðun og útbúum kostnaðaráætlun. Hafðu samband ef þú vilt bóka skoðun.
