Fréttir

Nýjustu fréttir frá Vefmundi

Bygging á nýju hóteli hófst í dag

Bygging á nýju hóteli hófst í dag

Í dag hófust framkvæmdir við nýtt 80 herbergja hótel í miðbænum. Byggingarfélagið Vefmundur sér um uppsteypu og frágang hússins sem áætlað er að verði tilbúið haustið 2028.

Verkefnið er eitt það stærsta sem félagið hefur tekið að sér og munu um 20 starfsmenn okkar vinna að því þegar mest lætur. Lögð er áhersla á vandaðan frágang, góða hljóðvist og orkusparandi lausnir.

Fyrsti áfangi felst í jarðvinnu og sökklum, en uppsteypa hefst í byrjun næsta árs. Við munum segja frá gangi verksins hér á vefnum eftir því sem því vindur fram.