Þjónusta

Það sem við gerum

Frá smærri viðgerðum til heilla nýbygginga. Við sjáum um verkið frá fyrsta fundi til afhendingar.

Hús byggð til að endast

Nýbyggingar

Hús byggð til að endast

Við byggjum einbýlishús, raðhús, sumarhús og atvinnuhúsnæði. Við getum tekið að okkur verkið í heild eða einstaka verkþætti.

  • Uppsteypa, burðarvirki og þak
  • Gluggar, klæðningar og frágangur að utan
  • Innréttingar og frágangur að innan
  • Byggingarstjórn og samskipti við byggingarfulltrúa

Viðhald og endurbætur

Gefðu eldra húsnæði nýtt líf

Við tökum að okkur viðgerðir og endurbætur á íbúðarhúsnæði og fjölbýlishúsum, innan sem utan.

  • Ástandsskoðun og kostnaðaráætlun
  • Viðgerðir á steypu og múr
  • Breytingar á skipulagi og innréttingum
  • Vinna fyrir húsfélög
Gefðu eldra húsnæði nýtt líf
Rétt ísetning skiptir máli

Gluggar og hurðir

Rétt ísetning skiptir máli

Við skiptum um glugga og hurðir og göngum frá þeim þannig að þau þoli íslenskt veðurfar til margra ára.

  • Ísetning nýrra glugga og hurða
  • Endurnýjun á opnanlegum fögum og listum
  • Þéttingar og frágangur
  • Svalahurðir og rennihurðir

Þök og klæðningar

Þak sem heldur vatni og vindi

Ný þök, þakviðgerðir og klæðningar á útveggi. Við metum ástandið og ráðleggjum þér um bestu lausnina.

  • Nýtt þak og þakpappi
  • Þakkantar, rennur og niðurföll
  • Klæðningar og einangrun útveggja
  • Viðgerðir eftir veðurtjón
Þak sem heldur vatni og vindi

Önnur þjónusta

Fleira sem við gerum

Kjarnaborun og múrbrot

Göt fyrir lagnir, glugga og hurðir, múrbrot og niðurrif með réttum tækjum.

Ráðgjöf og verkstjórn

Undirbúningur, kostnaðaráætlanir og samskipti við aðra fagaðila.

Pallar og skjólveggir

Sólpallar, skjólveggir og útigeymslur úr vönduðu efni.

Svona vinnum við

Frá fyrirspurn til afhendingar

Skref 1

Fyrirspurn

Þú hefur samband og segir okkur frá verkinu.

Skref 2

Skoðun og tilboð

Við skoðum aðstæður og sendum skriflegt verðtilboð.

Skref 3

Framkvæmd

Verkið er unnið á umsömdum tíma og þú ert upplýst/ur allan tímann.

Skref 4

Afhending

Við förum yfir verkið með þér og göngum snyrtilega frá.

Láttu fagmennina sjá um vinnuna

Segðu okkur frá verkinu og við sendum þér verðtilboð, yfirleitt innan tveggja virkra daga.